Safnkostur
Bókasafn Iðnskólans í Hafnarfirði er í uppbyggingu og vex safnkosturinn dag frá degi. Áhersla er lögð á að eiga bækur, tímarit og annað efni sem tengist kennslugreinum skólans.
Bækur og annað safnefni er lánað út fyrir utan tímarit og handbækur sem eingöngu eru til afnota á safninu.
Leit í bókasafnskerfinu Gegni
Gegnir, samskrá íslenskra bókasafna hefur nú verið formlega tekinn í notkun á bókasafni Iðnskólans í Hafnarfirði. Markmið kerfisins er að tryggja landsmönnum aðgang að bókfræðilegum upplýsingum sem nýtast í námi, starfi og/eða leik.
Kerfið byggir á einni sameiginlegri skrá sem notendur leita í á Internetinu. Ef farið er inn á Gegnir.is má fletta upp megninu af þeim safnkosti sem bókasöfn landins hafa að bjóða.
Til þess að sjá hvort að bók er til á bókasafni IH er best að byrja á að fara í ítarleit og slá þar inn höfund, titil eða efni í viðeigandi reiti.
Áður en smellt er á leita þarf að velja safnahóp sem er framhaldsskólasöfn og þar til hægri er bókasafn IH valið og síðan smellt á leitarhnappinn.
Ykkur er velkomið að senda inn fyrirspurnir á nanna.lind@idnskolinn.is
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir






























