Beint á leiðarkerfi vefsins

 

Markmið

Markmið ráðgjafarinnar er að veita nemendum þjónustu í málum sem tengjast námi þeirra, náms- og starfsvali og persónulegum högum. Þá veitir námsráðgjafi foreldrum, kennurum og öðru samstarfsfólki ráðgjöf í málum einstakra nemenda.  

Náms- og starfsráðgjafi er bundinn trúnaði við skjólstæðinga sína. Innan skólans er hann trúnaðarmaður og málsvari nemenda.

Hvers vegna að leita til náms- og starfsráðgjafa?

Marga vantar aðstoð við ýmis hagnýt atriði sem lúta að náminu. Nemendur geta t.d. fengið ráðgjöf við að skipuleggja nám sitt og stuðning til að geta stundað það.

Mál sem náms- og starfsráðgjafinn vinnur með eru fjölbreytt og eru helstu málaflokkar eftirfarandi:

  • Ráðgjöf í námi, s.s. skipulagning tíma, áætlanagerð og námstækni.
  • Ráðgjöf við náms- og starfsval, s.s. miðlun upplýsinga um möguleika og framboð á námi og störfum.
  • Ráðgjöf og stuðningur vegna persónulegra mála, s.s. vegna tímabundinna erfiðleika og/eða áfalla.

englishIðanMat á námilánasjóðurinnListaháskólinnMenntamálaráðuneytiðUpplýsingalæsiAlþjóðaskrifstofa háskólastigsinsefnahagsvandinn

Stjórnborð

Stækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Flýtileiðir


Myndir


Vefir

  • Almennt nám
  • Byggingagreinar
  • Hársnyrtiiðn
  • Listnám
  • Málmiðnir
  • Rafiðnir
  • Tækniteiknun
  • Útstillingar