Beint á leiðarkerfi vefsins

Skólareglur

  1. Nemendur mæti stundvíslega í allar kennslustundir.
  2. Nemendur sýni ávallt fyllstu kurteisi og tillitssemi í umgengni og gæti þess að valda ekki öðrum ónæði á starfstíma skólans.
  3. Nemendur gangi hreinlega og prúðmannlega um húsakynni skólans og fari vel með muni hans.
  4. Ef nemandi veldur skemmdum á húsnæði eða munum skólans ber honum að bæta tjónið.
  5. Nemendur séu snyrtilegir í klæðaburði.
  6. Nemendur geymi ekki peninga eða önnur verðmæti í yfirhöfnum eða töskum sem eru á almannafæri.
  7. Reykingar eru bannaðar í skólanum og á lóð hans.
  8. Neysla áfengis eða annarra vímugjafa er bönnuð innan skólans. Óheimilt er að vera undir áhrifum slíkra efna í húsakynnum skólans, eða hafa slík efni undir höndum þar.
  9. Auglýsingatöflur í skólanum eru ætlaðar fyrir auglýsingar verðandi skólahald og félagslíf nemenda. Sérstakt leyfi þarf til að festa upp aðrar auglýsingar.
  10. Óheimilt er að neyta matar, sælgætis og drykkja í kennslustofum.
  11. Notkun farsíma er óheimil í öllum kennslurýmum í húsinu.
  12. Nemendum ber að hlíta reglum um bifreiðastæði.
  13. Brjóti nemendur gegn reglum þessum verður það tekið fyrir í skólaráði.
  14. Veikindi ber að tilkynna daglega á skrifstofu skólans.

EnskaSkólavefurinnNámskjárinnInna nemendurMenntagáttIðan -fræðsluseturSamband íslenskra framhaldsskólanema MenntamálaráðuneytiðReykdalsfélagiðWorldSkills

Stjórnborð

Stækka leturMinnka leturHamur fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftré

Flýtileiðir


Myndir


Vefir

  • Almennt nám
  • Byggingagreinar
  • Hársnyrtiiðn
  • Listnám
  • Málmiðnir
  • Rafiðnir
  • Tækniteiknun
  • Útstillingar