Stefnumál
Jafnréttisstefna
Skólinn einsetur sér að starfa eftir lögum um jafnréttismál þar sem kveðið er á um jafna möguleika, réttindi og skyldur fyrir bæði konur og karla. Stefnt er að því að jafna hlut kvenna og karla í hinum ýmsu störfum og starfsgreinum, að vinna gegn kynferðislegri áreitni, að skapa góðar aðstæður til þess að samræma vinnu og fjölskyldulíf jafnframt því að taka tillit til hagsmuna beggja kynja í kennslu og starfi skólans. Jafnréttisstefnan stuðlar að því að hæfileikar og færni allra stafsmanna fái notið sín sem best. Stefnt er að því að auka áhuga og umræður meðal starfsfólks og nemenda skólans um jafnréttismál og mikilvægi þeirra bæði innan skólans og utan. Lögin kveða á um fræðslu um jafnréttismál í skólum og í skólanum er lögð áhersla á að búa bæði kynin jafnt undir virka þátttöku í samfélaginu, fjölskyldulífi og atvinnulífi. Bæði piltum og stúlkum eru kynnt störf sem hingað til hefur verið litið á sem hefðbundin karla- eða kvennastörf. Kennslugögn og námsgögn eiga að henta báðum kynjum.
Forvarnarstefna
Stefna skólans í forvarnarmálum er að stuðla að heilbrigðum lífsháttum og jákvæðri lífssýn nemenda og vinna gegn sjálfseyðandi hegðun. Við skólann er starfandi forvarnarteymi og fer forvarnarfulltrúi með verkstjórn þar. Verkefni forvarnateymis ná til allra forvarna innan skólans sem og þeirra viðburða sem haldnir eru á vegum skólans, s.s. skólaböll, skemmtikvöld, tölvulan o.þ.h. Verkefnin spanna afar breytt svið s.s. tóbaksreykingar, áfengisneyslu, fíkniefnaneyslu og átraskanir svo eitthvað sé nefnt.
Líkams- og heilsuræktarstefna
Allir nemendur sem stunda nám við skólann eru skyldugir til þess að ljúka þeim líkams- og heilsuræktaráföngum (ÍÞR) sem námskrá menntamálaráðuneytis segir til um. Kennsla í líkams- og heilsurækt skiptist í fjóra grunnáfanga og fjölbreytta valáfanga. Hver nemandi er skráður í a.m.k. einn líkams- og heilsuræktaráfanga á hverri önn. Þeir nemendur sem lokið hafa grunnáföngum og tilskyldum áfangafjölda í íþróttum- líkams- og heilsurækt sem viðkomandi braut segir til um, eiga þess kost að ljúka áföngum sínum í fjarnámi eða með fjölbreyttum valmöguleikum sem skólinn býður upp á hverju sinni. Enginn er undanþeginn þessari reglu þar sem skólinn framfylgir heilsuræktaráætlun og stefnu Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Stefna þessi miðar að því að gera framhaldsskólanemendur ábyrga fyrir eigin líkams- og heilsurækt á meðan á skólagöngu stendur og að henni lokinni.
Umhverfisstefna
Skólinn setur sér það markmið að vera í forystu varðandi umhverfismál og fylgja samþykktum Ríóráðstefnunnar 1992 um umhverfi og þróun. Tilgangurinn er m.a. að temja sér tillitssemi í umgengni við náttúruna og fara vel með auðlindir. Einnig er fylgt verkefni sem Hafnarfjarðarbær er þátttakandi í og nefnist Staðardagskrá 21 sem er ferli sem snýst um langtímasjónarmið, hugarfarsbreytingu og virka þátttöku íbúa í umhverfisvernd.
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir




























