Stefna um heilsueflingu meðal starfsfólks í Iðnskólanum í Hafnarfirði
„Góð heilsa gulli betri"
Undanfarin ár hefur skólinn haft opinbera stefnu í líkams- og heilsurækt til að stuðla að bættri heilsu starfsfólks. Starfsfólki stendur til boða æfingastyrkur á líkamsræktarstöð að eigin vali gegn framvísun greiðslukvittunar auk afsláttar við kaup á 9 mánaða æfingakortum hjá World Class. Til þess að fylgja eftir þessu starfi og gera enn betur var settur á laggirnar stýrihópur um heilsueflingu meðal starfsfólks. Hér á eftir fer stefna hópsins og er henni ætlað að efla mannauð vinnustaðarins með bættri heilsu og líðan. Er það von okkar að hún sé góð fjárfesting í mannauði skólans og líkleg til að skila ávinningi fyrir alla aðila.
Markmið:
- að útbúa stefnu til heilsueflingar starfsfólks.
- að stefna skólans um heilsueflingu sé eflandi fyrir líkamlega-, andlega- og félagslega líðan og heilsu starfsfólks.
- að hvetja starfsfólk til að huga að og taka ábyrgð á eigin heilsu.
Stefna:
- að vera leiðandi í stefnumálum skólans er varða heilsueflingu
- að stuðla að því að starfsfólk fari reglulega í heilsufarsmælingu hjá fagaðila.
- að vera sýnileg öllu starfsfólki t.d. með:
a. heimasíðu á vefnum þar sem upplýsingar um heilsutengd málefni eru aðgengileg
b. reglulegum pistlaskrifum íþróttafræðinga skólans
c. öflugri upplýsingagjöf og fræðslu um heilsutengd málefni
d. þátttöku á þemadögum - að standa fyrir reglulegum fræðslufundum fyrir starfsfólk um heilsutengd málefni.
- að finna leiðir til að auka framboð hollustu í mötuneytinu/skólanum og hvetja starfsfólk til að sækjast eftir þeim hollustuvörum sem boðið er upp á þar.
- að hafa vatnsvél á vinnusvæði kennara
- að bjóða árlega flensusprautu, starfsfólki að kostnaðarlausu
- að standa fyrir reglulegum könnunum meðal starfsfólks á árangri heilsueflingarinnar
Stýrihópur um heilsueflingu starfsfólks Iðnskólans í Hafnarfirði:
Gestur Gunnarsson, Hreiðar Gíslason, Inga Þóra Ingadóttir, Irena Óskarsdóttir, Nanna Lind, Ólafur Bjarni Bjarnason, Ragnhildur Guðjónsdóttir, Vaka Rögnvaldsdóttir og Þór Pálsson.
Hér birtum við heilsupistla með heilsusamlegum ráðleggingum - sá fyrsti er um líkamsbeitingu:
Nokkrir heilsusamlegir tenglar:-)
| Beinvernd.is - http://www.beinvernd.is/ - fróðleikur um beinþynningu og áhættupróf fyrir bæði konur og karla |
| Doktor.is - http://www.doktor.is/ - góðar og aðgengilegar upplýsingar um heilsufræði, læknisfræði, lyf og sjúkdóma |
|
Heilsuefling - http://www.heilsuefling.is// - upplýsingarsíða fyrir það sem er að gerast í heilsueflingar og forvarnarmálum innan vinnustaða á landinu Heilsubankinn - http://www.heilsubankinn.is/vefur/index.php - Heilsubankinn.is er upplýsinga- og gagnabanki. Vefnum er ætlað að vera vettvangur sem tengir saman þá aðila sem leita leiða til að ná bættri heilsu og betri líðan við þá meðferðar-, þjónustu- og söluaðila sem bjóða þjónustu og vöru sem stuðlar að heilbrigði og góðri líðan. |
| Hvað er í matinn? - http://hvaderimatinn.is/ - sniðugur vegur þar sem hægt er að finna góðar uppskriftir, búa til matseðla o. fl. |
|
Karlmenn og krabbamein - http://karlmennogkrabbamein.is/ - lífsstíll, heilsa og mataræði" er yfirskrift átaks Krabbameinsfélags Íslands til að hvetja karla til að huga að heilsu sinni og að læra að bera kennsl á fyrstu einkenni krabbameins |
| Lýðheilsustöð - http://www.lydheilsustod.is/ - Lýðheilsustarf miðar að því að viðhalda og efla heilbrigði fólks, með forvarnarstarfi og samfélagslegri ábyrgð á heilbrigði |
|
Ný dögun - http://www.sorg.is/ - samtök um sorg og sorgarviðbrögð, sem hafa það að markmiði að styðja syrgjendur og alla þá sem vinna að velferð þeirra |
| Rannsóknaþjónustan Sýni - http://syni.is/namskeid/ - ráðgjöf og námskeið um hollt mataræði |
| Reyklaus.is - http://www.reyklaus.is/ - stuðningur og aðstoð við að hætta að reykja |
| Umhuga.is - http://umhuga.is/ - upplýsingavefur um geðheilsu barna og ungmenna |
|
Vellíðan í vinnunni - http://www.vinnuvernd.is/ - þjónusta á sviði vinnuverndar og heilsueflingar - mikilvægur þáttur í því að auka starfsánægju og bæta árangur, öryggi, líðan og heilsufar starfsmanna |
Leit á vefnum
Flýtileiðir
Myndir




























